Pop-up myndlist og vistvænt grænmeti í Álfheimum

Um helgina verður myndlistarsýning í Álfheimum. Sýningin verður sett upp á vöruhóteli í verslunarkjarnanum við Álfheima. Hildur Steinunn Magnúsdóttir, Rán Jónsdóttir, Kristín Sunna Sigurðardóttir og Linn Björklund sýna þar verk sín.

Við Álfheimana verður grænmetismarkaður á laugardaginn frá kl. 11 - 16. Tómatar í öllum stærðum og gerðum, allskonar kál, gúrkur, gulrætur, radísur, rabarbari og kryddjurtir verða til sölu. Garðyrkjustöðin Kinn stendur fyrir markaðnum, en grænmetið sem kemur frá stöðinni er ræktað á vistvænan hátt. Hlynur Sigurbergsson frá garðyrkjustöðinni mælir sérstaklega með rófunum í þessari viku, en hann er einnig með markað á Hlemmi á miðvikudögum frá 14 - 19.

Passion Bakarí er  nýbúið að opna hjá sér glæsilegt útisvæði þar sem hægt er að gæða sér á veitingum undir berum himni þegar vel viðrar auk þess sem ísbúðin verður opin alla helgina.

Það ætti því að vera hægt að finna sér ýmislegt til dundurs í Álfheimum um helgina, hvort sem menn vilja gæða sér á bakkelsi, ís, grænmeti eða kíkja á listaverk hjá upprennandi listamönnum.

Framtakið í Álfheimum er hluti af verkefninu ,,Biðsvæði - Torg í biðstöðu“, en þar er framtíðarnotkun og möguleikar afmarkaðra svæða til skoðunar. Markmið verkefnisins er að gæða almenningsrými í borginni lífi og hvetja til umhugsunar og umræðu um framtíð þeirra. Sjá nánar undir www.reykjavik.is/bidsvaedi.