Breytingar hjá Bílastæðasjóði
Opnunartími bílahúsa Bílastæðasjóðs hefur verið lengdur fyrir skammtímagesti og nú opna þau sjö á morgnana og eru opin til miðnættis. Nýr opnunartími gildir alla daga ársins í öllum bílahúsum Bílastæðasjóðs, en þau eru m.a. staðsett við Laugaveg, Hverfisgötu, Seðlabankann, Skúlagötu, Vesturgötu og í Ráðhúsi Reykjavíkur. Þá hafa verið sett upp hjólastæði fyrir reiðhjól í öllum bílahúsunum og er frítt að nýta sér þau stæði.
Breytingar verða einnig á gjaldskyldutíma á laugardögum á gjaldsvæðum 1, 2 og 4 en nýr tími verður frá 10.00 - 16.00 í stað 10.00-13.00 áður. Aðrir gjaldskyldutímar haldast óbreyttir. Þá hækkar verð á gjaldsvæðum 1, 2 og 4 og er þetta fyrsta hækkunin á gjaldskyldum stæðum síðan árið 2000. Gjaldsvæði 1 mun kosta 225 kr. á klst. í stað 150 kr. og gjaldsvæði 2 og 4 mun fara úr 80 kr. í 120 kr. á klst. Hækkunin gildir frá og með mánudeginum 30. júlí. Engin hækkun verður á gjaldsvæði 3, sem er ætlað sem langtímastæði, en á því svæði er m.a. hægt að kaupa miða á u.þ.b. 1.900 krónur sem gildir í tvær vikur.