Minningarreitur í Vatnsmýrinni um atburðina í Noregi 22. júlí 2011
Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að Reykjavíkurborg tæki þátt í gerð minningarreits í Vatnsmýrinni um atburðina í Noregi í júlí 2011.
Stofnað verður til minningarreitsins í landi Háskóla Íslands í nánd við Norræna húsið á mörkum Friðlandsins í Vatnsmýri. Frumkvæðið hefur verið í höndum Norræna félagsins í samstarfi við Skógræktarfélag Reykjavíkur, Norræna húsið, Háskóla Íslands, útgáfufyrirtækið Draumsýn og Landmótun sf.
Gert er ráð fyrir að gróðursetja átta íslenska ilmreyni í hring sem tákn norðurlandanna fimm og sjálfsstjórnarsvæðanna þriggja, en í krans um kring verði gróðursettar sjötíu og sjö bjarkir til minningar um fórnarlömbin. Frumdrög að reitnum gerði Þorvaldur S. Þorvaldsson arkitekt en Áslaug Traustadóttir landslagsarkitekt hjá Landmótun sf. útfærði hugmyndina og lagaði að hönnun Friðlandsins í Vatnsmýri sem er í höndum stofunnar. Í hringnum er gert ráð fyrir fjórum bekkjum í höfuðáttirnar fjórar og áletrun þar sem sagt er frá aðstandendum og tilgangi. Staðsetningin er í og við landslagshugverk sænsku listakonunnar Gunilla Bandolín „Hola á himinbotni“ frá hátíðarsýningu Norræna myndlistarsambandsins „Norrænir brunnar“ á hálfrar aldar afmæli sambandsins árið 1995. Í tilefni af útkomu bókarinnar „Ég er á lífi, pabbi“ eftir feðginin Erik H.Sönstelie og Siri Marie Seim Sönstelie, sem fjallar um atburðina gróðursettu þau táknrænt tvær bjarkir sem upphaf að reitnum við hátíðlega athöfn 13. júní síðastliðinn.
Stefnt er að því að ljúka gerð reitsins, í megin dráttum, fyrir Menningarnótt í Reykjavík 18. ágúst ísumar en lokafrágangur fari fram vorið 2013.