Frístundaþjónusta fyrir fatlaða framhaldsskólanemendur

 

Borgarráð samþykkti í gær að veita 10,8 milljónir króna til frístundastarfs og lengdrar viðveru í Hinu Húsinu þannig að þörfum allra fatlaðra framhaldsskólanema verði mætt að fullu en þetta er samkvæmt tillögum ÍTR. Frístundastarfið mun hefjast 20.ágúst næstkomandi og starfa allt árið. 

Jafnframt felur borgarráð ÍTR og velferðarsviði að móta tillögur til framtíðar að heilstæðri frítímaþjónustu í Reykjavík fyrir fatlaða framhaldsskólanema. Tillögurnar skal vinna í samstarfi við skóla-og frístundasvið, jöfnunarsjóð sveitarfélaga, mennta og menningarmálaráðuneyti og Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.Tillögurnar skulu lagðar fram og kynntar fyrir íþrótta-og tómstundaráði , velferðarráði og borgarráði við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2013