Hinsegin bókmenntaganga á föstudag
Hinsegin bókmenntaganga um miðborg Reykjavíkur í fylgd Úlfhildar Dagsdóttur og Darren Foreman.
Haldið af stað frá Ingólfstorgi föstudaginn 10. ágúst kl. 17.00.
Hinsegin bókmenntagöngur hafa löngum verið vinsæll liður á dagskrá Hinsegin daga. Í ár bjóða Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO og Borgarbókasafn upp á slíka göngu um miðborg Reykjavíkur á ensku í fylgd Úlfhildar Dagsdóttur bókmenntafræðings, sem staldrar við á stöðum og staðleysum og rifjar upp gamlan og nýjan skáldskap – gamlar vögguvísur, kveinstafi kvalinna ásta og minningar um varanlegar nætur, jafnvel úr stáli. Í fylgd með henni er leikarinn Darren Foreman sem les brot úr skáldskapnum.
Gangan hefst á Ingólfstorgi föstudaginn 10. ágúst kl. 17.00. Ferðin tekur um klukkustund og þátttaka er ókeypis. Leiðsögnin er í þetta sinn eingöngu á ensku.