Fjölbreytt dagskrá í Viðey - kúmentínsla og Sigríður Thorlacius
Kúmentínsla kl. 19.15 - 22.00
Vegna mikillar blíðu í sumar færum við kúmentínsluna fram til 14. ágúst. Kúmentínslan hefur undanfarin ár verið geysilega fjölmenn því þá koma allir sem vettlingi geta valdið með plastpoka og skæri og sækja sér kúmen fyrir veturinn. Viðeyjarkúmenið er þekkt fyrir einstök gæði, það er fíngerðara en búðarkúmenið, bragðmeira og sætara. Einstaklega gott í baksturinn, að ekki sé minnst á kaffið!
Engin formleg leiðsögn er um Viðey þetta kvöld en aðstoð veitt og aðferðin sýnd þeim sem ekki hafa áður tínt kúmen.
Í sumar eru aukaferðir á þriðjudagskvöldum til Viðeyjar frá Skarfabakka kl. 18.15 og 19.15.
Kaffihúsið í Viðeyjarstofu er opið þessi kvöld og upplagt að njóta kvöldverðar í eyjunni áður en hafist er handa við tínsluna.
Síðasta ferjan fer úr Viðey kl. 22.00. Gjald í ferjuna fram og til baka er kr. 1000,- fyrir fullorðna og kr. 500,- fyrir börn 7-15 ára í fylgd fullorðinna. Frítt fyrir 6 ára og yngri.
Við minnum á að handhafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 10% afslátt í Viðeyjarferjuna og í Viðeyjarstofu. Sjá videy.com
Sigríður Thorlacius syngur í Viðey
Söngdívan Sigríður Thorlacius syngur í Viðey fimmtudagskvöldið 16. ágúst. Henni til halds og trausts verður bassaleikarinn Guðmundur Óskar Guðmundsson.
Guðmundur og Sigríður kynntust í Menntaskólanum við Hamrahlíð þar sem þau sungu í Kór Menntaskólans við Hamrahlíð og síðar Hamrahlíðarkórnum.
Bæði stunduðu þau frá unga aldri klassískt nám sem og nám í jazz-músík við Tónlistarskóla FÍH.
Sigríður og Guðmundur hafa marg oft starfað saman og eru bæði meðlimir í hinni landsþekktu hljómsveit Hjaltalín. Þau munu spila og syngja saman lög frá hinum ýmsu þjóðum, frá hinum ýmsu tímum og úr hinni og þessari áttinni.
Í Viðeyjarstofu eru ljúffengar veitingar á boðstólnum, tónleikagestir geta notið kvöldverðar fyrir tónleikana og þurfa þá að panta borð í síma 533 – 5055 eða videyjarstofa@videyjarstofa.is.
Sigling fyrir matargesti er frá Skarfabakka kl. 18:15. Aðrir tónleikagestir sigla frá Skarfabakka kl. 19.15
Miðar seldir á midi.is. Verð fyrir tónleikana og ferjuna er 3.000 kr.