Myndarlegur Laugavegur
Taktu mynd af lífinu á sumargötunum Laugavegi og Skólavörðustíg og deildu henni á Facebook eða sendu í tölvupósti. Það er ekki flóknara en svo og haltu svo áfram að njóta lífsins á göngugötunni, segir í kynningu um ljósmyndakeppni sem María Markó stendur fyrir og tengt er verkefninu Sumargötur.
Keppninni lýkur 19. ágúst eða daginn eftir Menningarnótt þannig að ekki er seinna vænna en senda inn. Facebook-siða verkefnisins er https://www.facebook.com/Sumargotur#!/Sumargotur og einnig er hægt að senda myndir í tölvupósti á sumargotur@hotmail.com. Dómnefnd velur síðan úr bestu myndunum og kemur verðlaunum til skila.
Ljósmyndakeppnin er eins og fyrr segir tengd verkefninu Sumargötur sem er hluti af ,,Biðsvæði - Torg í biðstöðu“, en þar er framtíðarnotkun og möguleikar afmarkaðra svæða til skoðunar. Markmið verkefnisins er að gæða almenningsrými í borginni lífi og hvetja til umhugsunar og umræðu um framtíð þeirra. Sjá nánar undir www.reykjavik.is/bidsvaedi.