Innköllun á „Heilum höfrum – oatgroats“

Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur

Efni:  Innköllun af markaði á „Heilum höfrum – oatgroats“ frá Heilsu ehf. vegna skordýra.

Heilsa ehf. hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, ákveðið að innkalla af markaði eftirfarandi vöru þar sem skordýr (bjöllur) hafa fundist í henni. 

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki: Heilsa.

Vöruheiti: Heilir hafrar - oatgroats.  

Ábyrgðaraðili: Vörunni er pakkað fyrir Heilsu ehf., Bæjarflöt 1, 112 Reykjavík í Bretlandi.

Nettóþyngd: 500 g.

Umbúðir: Plastpokar.

Best fyrir: Lok desember 2012 (enda DEC/2012).

Strikanúmer: 5025962021233.

Dreifing: Verslanir Heilsuhússins, Lifandi Markaður, Nettó Njarðvík, Samkaup Úrval Ísafirði, Vöruval Hf Vestmannaeyjum, Heilsuver Suðurlandsbraut.

Þar sem í vörunni fundust skordýr telst hún óhæf til neyslu og skal því öll lotan innkölluð í samræmi við ákvæði matvælalaga.  Samkvæmt upplýsingum frá Heilsu ehf. hefur þegar verið brugðist við og umrædd vara (með best fyrir enda „DEC/2012“) fjarlægð úr hillum verslana.

Viðskiptavinir sem keypt hafa „Heila hafra-oatgroats“ frá Heilsu með best fyrir lok desember 2012 (enda DEC/2012) eru beðnir um að skila vörunni í þeirri verslun sem hún var keypt og fá hana bætta eða farga henni.