Vel heppnuð Gleðiganga
Mikið var um litadýrð og gleði í göngunni sem haldin var í tólfta sinn. Þrátt fyrir rigningu létu borgarbúar og gestir það ekki á sig fá og fjölmenntu í miðborgina til þess að fylgjast með og taka þátt í hátíðahöldunum og lýsa þar með yfir stuðningi sínum við mannréttindabaráttu samkynhneigðra. Borgarstjóri tók þátt í gleðigöngunni í þriðja skipti. Að þessu sinni vildi borgarstjóri vekja athygli á málefni rússnesku pönkhljómsveitarinnar Pussy Riot og hvatti til þess að meðlimir hljómsveitarinnar yrðu leystar úr fangelsi. Á heimasíðu Amnesty International segir: „Þrjár ungar konur, meðlimir rússnesku pönksveitarinnar Pussy Riot, eru í varðhaldi. Þær voru handteknar eftir að þær sungu mótmælasöng í dómkirkju. Þær hafa verið ákærðar fyrir óspektir og bíða nú réttarhalda.“ Alþjóðleg mannréttindasamtök hafa hvatt rússnesk stjórnvöld til að sleppa stúlkunum, en þær eiga yfir höfði sér allt að 7 ára fangelsi verði þær dæmdar sekar.
Gleðigangan hófst við BSÍ og fór niður Sóleyjargötu, Fríkirkjuveg og um Lækjargötu að Arnarhóli. Á Arnarhóli var svo boðið upp á tónleika þar sem fjöldi tónlistarfólks kom fram þeirra á meðal var Páll Óskar, Sigga Beinteins, Friðrik Ómar, Blár Ópal, Birna Björns, Þórunn Antonía, Friðrik Dór o.fl.