Káratorgsmarkaður – Heimilislegt og kósí á Menningarnótt
Haldinn verður heimilislegur og kósí markaður á Káratorgi í tilefni Menningarnætur á laugardaginn þann 18. ágúst milli kl. 12 og 16. Á markaðnum verður boðið upp margvíslegan varning, bæði notað og nýtt, handunnið og hönnun.
Kaffismiðjan og verslunin Drekinn sem standa við torgið verða opin. Eins mun veitingastaðurinn Culina selja súpu, brauð og meðlæti og því hægt að setjast niður með veitingar á torginu
Lifandi tónlist og afslöppuð stemming. The Great Support Band mun spila frá 14.00 til 15.30. Einnig munu dansarar á vegum Tangófélagsins koma við á torginu og dansa og kl. 16:30 mun Alþýðu óperan flytja söngatriði úr uppfærslunni „Ráðskonuríki“.
Káratorg er staðsett gatnamótum Kárastígs, Njálsgötu og Frakkastígs og hefur hönnunarhópurinn Endurskoðendur Borgarinnar staðið að breytingum á torginu þar sem grunnhugmyndin er sótt í andrúmsloft Kaffismiðjunnar. Búið er að útbúa setsvæði þar sem heimilisleg stemming og frjálslegt viðmót er ríkjandi enda er torgið vel sótt af íbúum hverfisins og gestum og gangandi. Gestir Menningarnætur ættu ekki að láta markaðinn á Káratorgi fram hjá sér fara, því þar mun ríkja einstök stemning þar sem blómstrandi mannlíf fær notið sín.
Vinna hönnunarhópsins Endurskoðendur Borgarinnar við að glæða Kártorgið lífi er hluti af verkefninu „Biðsvæði - Torg í biðstöðu“. Markmið verkefnisins er að glæða almenningsrými í borginni lífi og hvetja til umhugsunar og umræðu um framtíð þeirra. Sjá nánar undir www.reykjavik.is/bidsvaedi.
Samskiptasíða Endurskoðendanna: http://www.facebook.com/endurskodendurborgarinnar.