Sveitasæla á Árbæjarsafni – Mjólk í mat og ull í fat

Næstkomandi sunnudag verður sveitasælan í algleymingi á Árbæjarsafni. Í hugum margra hafa gömlu sveitastörfin yfir sér rómantískan blæ en til að fæða og klæða fólk þurfti þó mörg handtök. Starfsfólk Árbæjarsafns mun veita gestum innsýn inn í þennan horfna heim á sunnudaginn kemur ásamt tækifæri til að aðstoða heimilisfólkið í gamla bænum við störf sín. Hér áður fyrr var það hverri konu mikilvægt að kunna að koma mjólk í mat og ull í fat. Í eldhúsinu mun húsfreyjan gera upp skyr og strokka smjör og á baðstofuloftinu mun vinnukonan þeyta rokkinn og teygja lopann. Í eldsmiðjunni verður eldsmiður að störfum.

Dagskrá eftir hádegi:

  •  Húsfreyjan í Árbæ skekur strokkinn 
  • Skyr verður gert upp á gamla mátann 
  • Tóskapur verður á baðstofuloftinu í Árbæ 
  • Eldsmiður verður að störfum í eldsmiðjunni
  • Gullsmiður að störfum í Suðurgötu 7
  • Lummubakstur verður í Hábæ