Bókmenntaborgin Reykjavík í Hörpu á Menningarnótt

Reykvískar bókmenntir, uppistand og dillandi tónar

Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO býður upp á fjölbreytta dagskrá í Hörpu á Menningarnótt, laugardaginn 18. ágúst. Hún er tileinkuð borgarbókmenntum í víðum skilningi og koma skáld ólíkra kynslóða við sögu, allt frá tímum fyrstu borgarbókmenntanna í Reykjavík um miðja síðustu öld til aukins margbreytileika borgarmenningar dagsins í dag. Dagskráin samanstendur af upplestri, spjalli, tónlist og uppistandi, en hún fer fram á þremur viðburðum sem dreifast yfir daginn. Dagskráin er á Norðurbakka Hörpu, sem er á 1. hæð hússins sjávarmegin.

Reykjavík í bókmenntum - kl. 14.30

Sá fyrsti, sem hefst kl. 14:30, er helgaður Reykjavík í bókmenntum, en þar flytja nokkrir höfundar skáldskap um borgina frá ólíkum hliðum. Höfundarnir eru Kristín Steinsdóttir formaður Rithöfundasambands Íslands, Sigurður Pálsson, Vigdís Grímsdóttir, Bragi Ólafsson, Þórdís Gísladóttir, Eiríkur Guðmundsson og Sjón, sem er formaður stjórnar Bókmenntaborgarinnar. Að auki leikur Bókbandið og syngur Reykjavíkurlög, en hljómsveitina skipa þeir Steingrímur Karl Teague, Andri Ólafsson og Daníel Friðrik Böðvarsson sem allir eru meðlimir hljómsveitarinnar Moses Hightower. Að morgni Menningarnætur afhendir borgarstjóri Rithöfundasambandi Íslands Gunnarshús til eignar, fyrrum heimili Gunnars Gunnarssonar rithöfundar, og er dagskráin sett saman í tilefni þessa.



Svinpjattar og vampírfés - kl. 16.00

Klukkan 16 verða „svingpjattar“, „vampírfés“ og fleiri miðbæjarverur í brennidepli en þá verður boðið upp á stutta dagskrá í tilefni fyrstu Lestrarhátíðar í Reykjavík sem verður haldin í október næstkomandi. Fríða Dís Guðmundsdóttir og hljómsveit frumflytja lagið Vögguvísu (Chi baba) í nýrri íslenskri útgáfu, Bergur Ebbi flytur gamanmál út frá slangurorðasafni sem Elías Mar safnaði um 1950 með skírskotun til götumáls dagsins í dag og Hjálmar Sveinsson spjallar um Elías og eftirstríðsárin í bland við örstuttan upplestur úr skáldsögunni Vögguvísu. Bókin er nýkomin út í nýrri útgáfu hjá forlaginu Lesstofunni og hún verður í brennidepli á hátíðinni í haust.



Nýju skáldin í bænum - kl. 17.30

Síðast en ekki síst gefst svo gestum kostur á að kynnast nýjum reykvískum skáldum á sprelllifandi ljóðadagskrá sem hefst kl. 17:30, þar sem skáld af erlendum uppruna og innfædd skáldsystkin þeirra leiða saman hesta sína. Þau Mazen Maarouf frá Palestínu, Juan Camilo Róman Estrada frá Kólumbíu, Elías Portela frá Galíseu, Harutyun Mackoushian frá Armeníu og Syríu og Kári Tulinius og Þórdís Björnsdóttir frá Íslandi, sem öll eru búsett í Reykjavík, flytja ljóð á ýmsum tungumálum sem þau hafa þýtt hvert eftir annað. Öll erlendu ljóðin verða flutt bæði á íslensku og á frummálinu.