Gleðilega Menningarnótt!
Á Menningarnótt verður boðið upp á 350 viðburði vítt og breitt um borgina og búist er við fjölda gesta. Menningarnótt er nú haldin í 17. sinn og hefur öðlast sérstakan sess í hugum borgarbúa. Dagskráin er viðamikil og samanstendur af viðburðum sem lærðir og leikir ætla að bjóða upp á bæði heima hjá sér eða úti á götum borgarinnar. Borgaryfirvöld og borgarbúar leggjast á eitt til að gera daginn eftirminnilegan og stemningin er einstök.
Jón Gnarr, borgarstjóri mun taka þátt í ýmsum viðburðum í tilefni menningarnætur. Meðal þess sem hann tekur þátt í er afhending gjafaafsals að Gunnarshúsi til Rithöfundasambands Íslands að Dyngjuvegi 8, ræsing Skemmtiskokksins í Lækjargötu, Setning Menningarnætur á útisviði í Hljómskálagarðinum, opnun dagskrár Norræna félagsins í Ráðhúsinu og útnefning Borgartrésins 2012.
Borgarbúar og gestir eru hvattir til að ganga vel um borgina, skilja bílinn eftir heima og nota almenningssamgöngur til að komast leiðar sinnar. Gleðilega Menningarnótt!