Menningarnótt í blíðskaparveðri
Jón Gnarr, borgarstjóri, setti Menningarnótt formlega klukkan 13.00 í dag í Skátalandi í Hljómskálagarðinum. „Gakktu í bæinn“ er yfirskrift Menningarnætur og vísar það til þeirrar gömlu og góðu íslensku venju að bjóða fólk velkomið. Borgarstjóri hvatti borgarbúa til að njóta hinnar fjölbreyttu dagskrár sem í boði er á Menningarnótt og ganga vel um bæinn. Að lokinni setningu var boðið upp á tónlistaratriði til heiðurs Ingibjörgu Þorbergs söngkonu sem er 85 ára um þessar mundir. Mikill fólksfjöldi er samankominn í miðborginni til þess að njóta dagskrár Menningarnætur enda blíðskaparveður.
Borgarstjóri hóf daginn á því að afhenda fulltrúum Rithöfundasambands Íslands gjafaafsal að Gunnarshúsi að Dyngjuvegi 8 í tilefni af því að Reykjavík er orðin Bókmenntaborg UNESCO. Gunnarshús er miðstöð hátt á fjórða hundrað meðlima sambandsins og húsið er orðið að lifandi minningu um Gunnar Gunnarsson, með fjölda viðburða sem varða skáldið og verk hans (erindi, sýningar, upplestrar). Húsið hefur öðlast þann sess að vera andlit Rithöfundasambandsins innanlands sem utan.
Að því búnu hélt borgarstjóri í Lækjargötu þar sem Reykjavíkurmaraþonið stóð sem hæst. Borgarstjóri ræsti þátttakendur í skemmtiskokkinu, en hátt í 2000 manns á öllum aldri tóku þátt í hollri hreyfingu og skemmtun.
Í Ráðhúsi Reykjavíkur er Norræna félagið á Íslandi með 90. ára afmælisveislu í Tjarnarsalnum þar sem boðið er upp á sýningu um Norðurlöndin í máli og myndum. Borgarstjóri hélt opnunarræðu og að því búnu var undirritaður samningur um minningarreit í Vatnsmýri um þá sem létust í Osló og Útey í Noregi 22. júlí 2011.
Menningarnótt Reykjavíkur er nú haldin í sautjánda sinn og er langfjölmennasta hátíð sem haldin er á landinu. Dagskráin hefur gengið vel það sem af er degi, og að sögn lögreglu hefur verið jafn straumur fólks í miðborgina og fer fjölgandi eftir því sem líður á daginn. Boðið verður upp á veglega tónleika á Arnarhóli og á Ingólfstorgi og Menningarnótt lýkur svo með flugeldasýningu sem hefst klukkan 23.00. Sjá nánar dagskrá á www.menningarnott.is.
Borgarbúar eru hvattir til að skilja bílinn eftir heima og nýta sér ókeypis strætóferðir eða fara í göngu- eða hjólreiðaferð niður í miðborgina á Menningarnótt.