Sigfús Grétarsson nýr skólastjóri Selásskóla
Skóla- og frístundaráð ákvað á fundi sínum þann 15. ágúst sl. að ráða Sigfús Grétarsson í stöðu skólastjóra Selásskóla frá hausti 2012. Sigfús hefur víðtæka reynslu af stjórnun og hefur meðal annars starfað sem skólastjóri Hallormsstaðaskóla, Valhúsaskóla og Grunnskóla Seltjarnarness. Sigfús hefur töluvert ritað um fræðslumál og haldið fyrirlestra.
Selásskóli er jaðarskóli efst í Árbænum. Nemendur eru liðlega 200 talsins og eru í skólanum til 12 ára aldurs en þá fara þeir í Árbæjarskóla sem er safnskóli hverfisins. Skólinn hefur nýtt sér nálægð við helstu náttúruperlur borgarinnar með því að tengja hana við sem flestar námsgreinar.