Stafganga í Viðey í kvöld

Í kvöld, þriðjudaginn 21. ágúst, býðst áhugsömum að mæta í ókeypis stafgöngukennslu í Viðey hjá Guðnýju Aradóttur, einum fremsta leiðbeinanda landsins í þessari íþrótt.



Stafganga er holl og góð hreyfing fyrir alla og hefur hún undanfarin ár rutt sér til rúms sem fyrirtaks heilsurækt og útivist. Sífellt fleiri sækja námskeið í stafgöngu og stunda íþróttina reglulega í kjölfarið. Þeir sem eiga stafi taka þá með, en einnig verður hægt að fá stafi lánaða hjá leiðbeinandanum.



Í sumar eru aukaferðir á þriðjudagskvöldum til Viðeyjar frá Skarfabakka kl. 18.15 og 19.15. Kaffihúsið í Viðeyjarstofu er opið þessi kvöld og upplagt að njóta kvöldverðar í eynni áður en heilsuræktin byrjar.

Stafgangan hefst kl. 19.30 við Viðeyjarstofu og tekur eina og hálfa til tvær klukkustundir. Að göngu lokinni er upplagt að tylla sér niður í Viðeyjarstofu og fá sér hressingu áður en haldið er heim á leið en seinasta ferjan fer úr Viðey kl. 22.00. Gjald í ferjuna fram og til baka er kr. 1.000,- fyrir fullorðna og kr. 500,- fyrir börn 7 - 15 ára í fylgd fullorðinna. Frítt fyrir 6 ára og yngri. Stafgangan er ókeypis og öllum opin.



Við minnum á að handhafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 10% afslátt í Viðeyjarferjuna og í Viðeyjarstofu.