Grill og vinnugleði á Baldurstorgi
Íbúar í nágrenni við Baldurstorg ætla í dag eftir kl. 17.30 að taka höndum saman og snyrta torgið sitt og slá upp grillveislu í kjölfarið.
Hópurinn Rúmmetri, sem stóð að því að færa torgið í núverandi horf, mun sjá fyrir áhöldum, málningu og laukum sem settir verða í beðin til að blómstra þar að vetri loknum. Matur verður í boði Rúmmetra og hverfiskokksins Úlfars á Þremur Frökkum, en gestir eru beðnir um að taka með sér meðlæti að vild. Þeir sem eiga grill eru beðnir um að kippa þeim með sér út á torgið og tónlistarfólk í hópi íbúa er beðið um spara sér hógværðina. Á staðnum verða krítar, húllahringir, sippubönd og brenniboltar tiltækir fyrir börn á öllum aldri.
Breytingarnar sem gerðar voru á svæðinu eru hluti af „Biðsvæði - Torg í biðstöðu“, en þar er framtíðarnotkun og möguleikar afmarkaðra svæða til skoðunar. Markmið þeirra verkefna er að glæða almenningsrými lífi og hvetja til umhugsunar og umræðu um framtíð þeirra og í grillveislunni á Baldurstorgi gefst gott tækifæri fyrir íbua að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Rúmmeter hópurinn hvetur íbúa til að hjálpast að við að hlúa að torginu og njóta þess saman.
Innan Rúmmeters starfa Hildur Björgvinsdóttir, Sara Axelsdóttir og Jón Teitur Sigmundsson. Samskiptasíða hópsins er www.facebook.com/Rummeter.
Nánari upplýsingar um Biðsvæði – Torg í biðstöðu er að finna á vefslóðinni www.reykjavik.is/bidsvaedi.