Hringþing um menntun innflytjenda

Hringþing stöðu og framtíð menntamála innflytjenda á öllum skólastigum og í fullorðinsfræðslu verður haldið í Rúgbrauðsgerðinni í Reykjavík 14. september kl. 8.30 - 16.30. Aðgangur er ókeypis.

Markmiðið er að skapa samræðuvettvang þeirra fjölmörgu sem koma að menntamálum innflytjenda. Leitað verður álits fundargesta á forgangsröðun verkefna og hver skuli vera helstu forgagnsverkefni á sviði menntamála innflytjenda í framkvæmdaáætlun sem mótuð verður á næstu misserum. Á þinginu verða einnig kynnt ýmis áhugaverð og hagnýt verkefni. 

Þingið er öllum opið. Sérstök áhersla er lögð á þátttöku fulltrúa innflytjenda, kennara, stjórnenda, foreldra og nemenda og annarra sem tengjast á einhvern hátt leik-, grunn-, framhalds- og háskólastigi og fullorðinsfræðslu. Eins er mikilvægt að þeir sem vinna að mótun og framkvæmd stefnu á ýmsum sviðum menntunar innflytjenda sæki þingið og leggi sitt af mörkum með virkri þátttöku.

Sjá frekari upplýsingar á vef velferðarráðuneytisins.