Note: This news was published over two years ago.
Uppskeruhátíð Grasagarðsins á laugardaginn
Árleg uppskeruhátíð Grasagarðsins verður haldin laugardaginn 25. ágúst kl. 13 - 15. Garðyrkjufræðingar og annað starfsfólk garðsins kynna ræktun, nýtingu og geymslu mat- og kryddjurta.
Einnig mun Einar Logi Einarsson grasalæknir fræða gesti um lækningajurtir og áhrif þeirra en í nytjajurtagarði Grasagarðsins eru, auk grænmetis og kryddjurta, ræktaðar lækningaplöntur.
Gestum verður boðið að bragða á nýuppteknu grænmeti úr garðinum, ljúffengri grænmetissúpu og grasatei úr lækningajurtum.