Nýtt gufubað í Nauthólsvík

Nýverið var nýtt gufubað tekið í notkun á Ylströndinni í nauthólsvík. Afgreiðslutími Ylstrandarinnar fram að áramótum verður aukinn frá því í fyrra og nú er opið í hádeginu á virkum dögum milli klukkan 11:00 og 13:00 og síðdegis á mánudögum og miðvikudögum frá kl. 17.00 til 19.00. Gjaldtaka hefst á ströndina þann 1. September og verðskrá má nálgast á heimasíðu Ylstrandar.