Tímabundin lokun á Lambhagavegi

Vegna vinnu á Lambhagavegi milli Mímisbrunns og hringtorgs við Reynisvatnsveg verður veginum lokað fyrir umferð og beint um hjáleiðir um Vesturlandsveg. Lokað verður á mánudagsmorgunn 27. ágúst og er áætlað að verkið taki fimm daga.

 Endurgera þarf efra burðarlag götunnar á 130 metra löngum kafla, endurleggja malbik og kantsteina. Verkið verður unnið af Fagverki ehf.  og makbikunarstöðinni Höfða. 

 Beðist er velvirðingar á töfum sem af framkvæmdum stafar og vegfarendur eru jafnframt beðnir um að sýna aðgát á hjáleiðum.

Yfirlitsmynd - merkingar á framkvæmdatíma.