Í holtinu heima - hverfishátíð
Íbúasamtök Grafarholts, Knattspyrnufélagið Fram, Þjónustumiðstöð Grafarholts og Ársel bjóða til fyrstu hverfishátíðarinnar í Grafarholti, laugardaginn 25. ágúst. Hátíðin hefur fengið heitið Í Holtinu heima og kjörorð hennar eru samvera og samkennd. Í tilefni hennar eru íbúar hvattir til sýna náunganum hlýju, bjóða gestum og gangandi í heimsókn eða taka sig saman og halda götugrill að kveldi dags.
Dagskrá:
Kl. 11.00 - 14.00
Útimarkaður við Ingunnarskóla
Sannkallaður stórmarkaður þar sem allir geta fundið eitthvað sem vantar.
kl. 13.00 - 15.00
Stórleikur Framvellinum í Úlfarsárdal
Meistaraflokkur Fram í kvennaknattspyrnu mætir BÍ/Bolungarvík kl. 13 á Framvellinum í Úlfarsárdal.
kl. 15.00
Besta fótboltagatan 2012
Eftir fótboltaleikinn eða kl. 15 verður Fram með fótboltamót milli gatna í hverfinu á vellinum í Úlfarsárdal.
Ljósmyndakeppnin – Heima
Blásið hefur verið til ljósmyndakeppni í tilefni hátíðarinnar og ber hún yfirskriftina Heima. Íbúar eru hvattir til að setja inn ljósmyndir sem vísa með einum eða öðrum hætti til orðsins heima á Facebooksíðu Íbúasamtaka Grafarholts, Ég er íbúi í Grafarholti. Vegleg verðlaun eru í boði fyrir bestu myndina og verða úrslit í keppninni kynnt við varðeld í Leirdal kl. 21.
kl. 21.00
Varðeldur og stórsöngvarinn Eyþór Ingi í Leirdal
Hátíðinni lýkur með varðeldi og söng í Leirdal kl. 21 þar sem stórsöngvarinn Eyþór Ingi Gunnlaugsson mun skemmta af sinni alkunnu snilld.
Fjölmörg fyrirtæki í Grafarholti taka þátt í deginum og verða með sérstök tilboð í tilefni hans.
Nánar verður hægt að fylgjast með dagskrá hátíðarinnar á Facebooksíðu Íbúasamtaka Grafarholts, Ég er íbúi í Grafarholti og á heimasíðu samtakanna, Grafarholt.com.
Við hlökkum til að sjá ykkur og eiga með ykkur eftirminnilegan fjölskyldudag í holtinu heima.