Jarðfræði Viðeyjar - þriðjudagsganga
Jarðfræði er Íslendingum hugleikin og ekki þarf nema rétt að bregða sér af braut malbiksins til að finna merkar jarðmyndanir. Í Viðey er elsta berg borgarlandsins að finna og víða í eyjunni sjást stórbrotnar bergmyndanir, meðal annars fallegt stuðlaberg.
Þriðjudaginn 28. ágúst mun Hreggviður Norðdahl jarðfræðingur miðla af visku sinni um hvernig eldar, ís og sjór hafa skapað og mótað hina fallegu Viðey.
Ferjan til Viðeyjar fer aukaferð á þriðjudagskvöldum frá Skarfabakka kl. 18.15 og 19.15.
Kaffihúsið í Viðeyjarstofu er opið þessi kvöld og upplagt að njóta kvöldverðar í eyjunni áður en gangan hefst. Að göngu lokinni er einnig tilvalið að fá sér hressingu áður en haldið er heim á leið.
Síðasta ferjan fer úr Viðey yfir á Skarfabakka kl. 22.00. Ókeypis er í gönguna en gjald í ferjuna fram og til baka er kr. 1000,- fyrir fullorðna og kr. 500,- fyrir börn 7 - 15 ára í fylgd fullorðinna. Frítt fyrir 6 ára og yngri.
Handhafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 10% afslátt í Viðeyjarferjuna og í Viðeyjarstofu.