Note: This news was published over two years ago.
Nýr brettagarður kynntur
Reykjavíkurborg stendur í næstu viku fyrir kynningarfundi um nýjan hjólabrettagarð í Laugardal sem unnið hefur verið að í sumar. Kynntar verða framkvæmdir og áform um notkun og rekstur hjólabrettagarðsins. Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 4. september kl. 17.30 í Laugabóli, félagshúsi Þróttar í Laugardal.
Sjá nánar á upplýsingasíðu í Framkvæmdasjá >>> Opna síðu