Dalskólabörn fá gullverðlaun í alþjóðlegri myndlistarsamkeppni

Nemendur í Dalskóla hrepptu fern gullverðlaun í alþjóðlegri myndlistarkeppni sem haldin var í  á vegum Barnamenningarhús í Ungverjalandi. Börn frá 39 löndum tóku þátt í keppninni. Verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn í september og mun sendiherra Íslands veita þeim viðtöku fyrir hönd barnanna.

Fjögurra til átján ára börn frá 39 löndum tóku þátt í keppninni og komu fjögur gullverðlaun í hlut Dalskóla. Verðlaunaverkin voru unnin í samvinnu við Hildi Yeoman fatahönnuð og kennara við Listaháskóla Íslands. Edda Ýr Garðarsdóttir myndlistakennari í Dalskóla leiddi starfið. Verkin voru unnin undir yfirheitinu Í hita leiksins en það var 6 vikna menningarsmiðja sem fór fram í skólanum á vormisserinu og voru allar listgreinar leiddar saman.

Í verðlaunavinnunni  var leitast við að brjóta upp hefðbundnar hugmyndir barna  um búninga  úr bíómynda- og teiknimyndaheiminum. Náttúran var nýtt sem kveikja  svo og búningar ýmissa þjóðarbrota. Vinnuaðferðir og skapandi nálgun Hildar Yeoman á viðfangsefninu var mikil uppspretta og andagift fyrir nemendur eins og sjá má af myndum. 

Sjá frétt á vef menntamálaráðuneytisins.