Íslenskt hunang og sultur
Íslenskt hunang og sultur
Uppskeruhátíð býflugnabænda verður haldin í veitingatjaldi Fjölskyldu- og húsdýragarðsins laugardaginn 1. september milli kl 14.00 og 16.00. Býflugnabændur kynna býflugnarækt og koma með sýnishorn af uppskeru sumarsins. Þeir munu gefa gestum að smakka eigin framleiðslu af hunangi sem verður slengt beint úr búinu á staðnum. Einnig verður takmarkað magn af íslensku hunangi til sölu. Þá verður ýmis búnaður tengdur býflugnarækt sýndur. Nánari upplýsingar um býflugur má finna á www.mu.is.
Kvenfélagasamband Íslands verður með sultukynningu á sama. Eins og fram hefur komið í fréttum undanfarið hefur berjaspretta verið með eindæmum góð og ættu því húsmæður og –feður að finna gagnlegan fróðleik í röðum félaga í Kvenfélagasambandinu til að nýta berin. Húsfreyjan tímarit Kvenfélagasambands Íslands mun liggja frammi.
Þá er þetta síðasta helgin sem öll leiktækin eru opin í ár. Vetraropnunartími hefur tekið gildi og verður opið alla daga kl: 10 - 17. Tilboð verður á dagössum helgina 1. og 2. september, 1000 krónur stykkið í stað 2000 króna.