Náttúruskólinn fær Grænfánann í annað sinn
Náttúruskóli Reykjavíkur fékk, þriðjudaginn 27. ágúst, Grænfána í annað sinn fyrir árangursríkt umhverfisstarf sl. ár. Umhverfisnefnd Náttúruskólans veitti fánanum viðtöku í Grasagarði Reykjavíkur þar sem hann var dreginn að húni að viðstöddum gestum og velunnurum skólans. Þar á meðal voru nokkrir Danir sem staddir eru hérlendis til að kynna sér útinám í grunn- og leikskólum borgarinnar. Náttúruskóli Reykjavíkur ásamt verkefninu Lesið í skóginn aðstoðuðu Dani við skipulagningu heimsóknarinnar.
Landvernd hefur umsjón með verkefninu Skólar á grænni grein en Grænfáninn er viðurkenningin sem skólar geta sótt um fyrir þátttöku sína í verkefninu. Náttúruskóli Reykjavíkur hefur nú fengið leyfi til að flagga fánanum í eitt ár. Á hverju ári þarf skólinn að sýna fram á framfarir í umhverfismálum til að geta sótt um endurnýjun fánans.