Reykjavíkurborg greiðir niður skuldir og eigið fé styrkist

Árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar-júní 2012 var lagður fram í borgarráði í dag fimmtudaginn 30. ágúst. Fjárhagslegur styrkur A-hluta borgarsjóðs er mikill hvort sem litið er til eiginfjárstöðu eða hefðbundinna skuldaþekjuhlutfalla. Eiginfjárhlutfall, skuldahlutfall og sjóðstreymi samstæðunnar, A- og B- hluta styrktist á tímabilinu sem sýnir að reksturinn er traustur og á góðri leið þrátt fyrir talsverðar sveiflur í utanaðkomandi þáttum. Skuldsetningarhlutfall samstæðunnar lækkar um nærri 7%, fer úr tæpum 203% í 194%. 

 

Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, sem heldur utan um rekstur fagsviða, og Eignasjóð. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Orkuveita Reykjavíkur, Bílastæðasjóður Reykjavíkur, Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf., Íþrótta- og sýningahöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf.,  Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Aflvaka hf og Jörundar ehf.

 

Rekstrarniðurstaða A-hluta var neikvæð um 2.807 m.kr en áætlanir gerðu ráð fyrir að hún yrði neikvæð um 2.271 m.kr á tímabilinu. Niðurstaðan er því lakari en gert var ráð fyrir sem nemur 537 m.kr. Skýringuna á óhagstæðari niðurstöðu A-hluta er hægt að rekja til gjaldfærslu lífeyrisskuldbindinga, en þær námu 1.300 m.kr skv. bráðabirgðamati en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 300 m.kr. Lífeyrisskuldbindingarnar eru hærri vegna launahækkana starfsmanna Reykjavíkurborgar.

Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var neikvæð um 1.842 m.kr en áætlanir gerðu ráð fyrir neikvæðri niðurstöðu um 1.358 m.kr.  Afkoman var því 483 m.kr verri.  



Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A og B hluta, var neikvæð um 4.464 m.kr en áætlanir gerðu ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 277 m.kr. Þennan viðsnúning má einkum finna í fjármagnsliðnum sem var neikvæður um 12.555 m.kr en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir að hann yrði neikvæður um 6.143 m.kr. Skýringuna er að finna í veikara gengi og lægra álverði sem hefur áhrif á rekstrarniðurstöðu Orkuveitu Reykjavíkur. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 7.085 m.kr sem er um 364 m.kr lakari niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir.



Heildareignir samstæðunnar samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi námu í lok tímabilsins 460.612 m.kr, heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 318.452 m.kr og eigið fé nam 142.160 m.kr en þar af er hlutdeild meðeigenda 7.864 m.kr.

Ársreikningur - Samstæða Reykjavíkurborgar jan. - jún. 2012 (PDF 570 KB).