Himinlifandi með hreystibraut við Seljaskóla

,,Við erum himinlifandi yfir framkvæmdum á lóðinni“, segir Þórður Kristjánsson skólastjóri Seljaskóla, en unnið hefur verið að endurgerð skólalóðarinnar síðustu tvö sumur. Nú í vikunni var sett þar upp hreystibraut sem vakið hefur mikla lukku meðal nemenda. Þeir hafa verið þar við æfingar í íþróttatímum og í frímínútum og tekið vel á í brautinni. Þórður segir að þegar vinna við endurgerð lóðarinnar hófst fyrir tveimur árum hafi verið opnaður hugmyndabanki og margar hugmyndir að úrbótum hafi komið frá nemendum. Meðal annars hafi verið haft að leiðarljósi að auka hreyfingu nemenda, styrk og jafnvægi.  

Skólalóðin við Seljaskóla býður nú upp á fjölbreyttari útivist og með hreystibrautinni má efla enn frekar útikennslu í íþróttum. Andrés Guðmundsson hafði yfirumsjón með uppsetningu hreystibrautarinnar en hann hefur þegar sett upp fimm slíkar brautir við grunnskóla. Brautirnar miðast við að þar geti nemendur stundað ákveðnar æfingar sem lagðar eru til grundvallar í Skólahreysti, íþróttaframtaki og samkeppni sem margir grunnskólar taka þátt í. Hlaupakötturinn er sérlega vinsæll og býður upp á fjölmörg tækifæri til leiks og þjálfunar. Einnig er búið að setja upp önnur tæki  á skólalóðinni frá Barnasmiðjunni sem reyna á styrk og jafnvægi.



Í sumar lauk öðrum áfanga af þremur í endurgerð skólalóðarinnar við Seljaskóla og um þessar mundir er verið að ganga frá trjábeðum og öðrum gróðri. Næsta sumar verður lögð lokahönd á endurgerð lóðarinnar. 

Sjá æfingarkort frá Skólahreysti.