Blómalisthefðin Ikenobo, fyrirlestur og smiðja

Laugardaginn 8. september kl. 13.00 mun Yuki Ikenobo, einn þekktasti blómaskreytingameistari Japan, flytja opinn fyrirlestur um blómalisthefðina Ikenobo, sem er 550 ára gamalt afbrigði af Ikebana aldagamalli blómaskreytingahefð Japana (sjá upplýsingar hér: http://www.ikebanabyjunko.co.uk).

Kl. 14.00 hefst síðan tveggja tíma vinnusmiðja þar sem Yuki Ikebana mun kenna blómalistskreytingar. Aðeins er pláss fyrir 20 í smiðjunni og eru áhugasamir beðnir um að skrá sig hjá Margréti Björnsdóttur, msb@hi.is. Athugið að vegna fjöldatakmarkana er skráningin skuldbindandi.



Fyrirlesturinn og vinnusmiðjan, sem haldin eru sem hluti af Hírósíma-Nagasaki sýningunni í Borgarbókasafninu, Tryggvagötu 15, verða í sama húsi, en í sal Ljósmyndasafns Reykjavíkur á 6. hæð. Hvoru tveggja er án endurgjalds og í boði Ikenobo blómaskreytingaskólans og Japan Foundation.





Yuki Ikebana er í 46. ættlið blómaskreytingalistamanna. Fjölskylda hennar hefur í 550 ár stundað þessa listgrein og rekur í dag Ikenobo- blómaskreytingaskólann, en í dag starfa um eitt hundrað Ikenobo félög og námshópar um allan heim. Yuki Ikebana er jafnframt kjörræðismaður Íslands í Kyóto.