Mazen Maarouf - Heimsbókmenntir að hausti

Fimmtudaginn 6. september kl. 17 mun rithöfundurinn Sjón ræða við rithöfundinn Mazen Maarouf um höfundaferil og verk hans í aðalsafni, Tryggvagötu 15. Ljóð eftir Mazen verða einnig lesin á arabísku og í íslenskri þýðingu. Við sama tækifæri opnar sýning á málverkum Mazens á bókatorgi Borgarbókasafns, en hann málar myndir á striga samhliða skrifum sínum.

Mazen Maarouf (f. 1978) er palestínskt ljóðskáld og rithöfundur. Fjölskylda hans flúði Palestínu árið 1948 og hann hefur lengst af búið í Líbanon þar sem hann ólst upp, gekk í skóla og starfaði. Ljóð eftir Mazen hafa verið þýdd á fjölda tungumála. Þau hafa birst í tímaritum og safnritum í Frakklandi, Skotlandi, á Íslandi, í Svíþjóð, Kína og Möltu.

Mazen er gestarithöfundur í Reykjavík á vegum Reykjavíkurborgar og ICORN, International Cities of Refuge.

Aðgangur er frír og öllum opinn.

Dagskráin er hluti af Heimsbókmenntum á hausti sem er á vegum Bókmenntaborgarinnar. Boðið verður upp á röð viðburða helgaða bókmenntum frá ólíkum heimshornum út mánuðinn.