Útivistartími barna og unglinga breytist

Vert er að hafa í huga að frá og með 1. september breytist útivistartími barna þannig að nú mega 12 ára börn og yngri ekki vera lengur ein úti en til kl. 20. Og þau sem eru á aldrinum 13 - 16 ára mega ekki vera lengur úti en til kl. 22.



Foreldrum reynist oft erfitt að fá börnin til að fara eftir þessu - en þá er gott að geta vitnað í að þetta eru lög sem foreldrar - og aðrir - þurfa að fara eftir. Börn eiga ekki að vera ein á ferð eftir leyfilegan útivistartíma. Bregða má út af reglunum fyrir síðartalda hópinn þegar unglingar eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Aldur miðast við fæðingarár.