Ljósmyndasýning í sundlaugum Reykjavíkur
Í sundlaugum Reykjavíkurborgar hefur verið hengd upp ljósmyndasýning úr heimildarmyndinni SUNDIÐ eftir Jón Karl Helgason. Sýningin er í boði ÍTR. Myndirnar rekja sögu sundkunnáttunnar á Íslandi í stuttu máli.
Sögulegar heimildir eru til um að landnámsmenn jafnt höfðingjarnir sem og þrælar af lakara taginu hafi verið flugsyndir. En það fór með sundið okkar Íslendinga eins og annað, þegar deyfðin kom í þjóðina, týndist sú mennt.
Fjölnismenn gefa út Sundreglur árið 1843. Þar ritar Jónas Hallgrímsson í formála: „Í byrjun 19.aldar þegar Íslendingar voru fimmtíu þúsund kunnu aðeins sex menn á öllu landinu að synda“. Frá 1880 til 1990 drukknuðu 5354 Íslendingar.
Á síðasta ári komu um 1,8 milljón gestir í laugarnar í Reykjavík. Nú hafa staðið yfir miklar framkvæmdir í laugunum sem bæta enn frekar aðstöðu og þjónustu við gesti.
Heimildarmyndin - SUNDIÐ - verður frumsýnd í Bíó Paradís 18. október 2012.