Græn skref í Vesturgarði

Nú er Vesturgarður, þjónustumiðstöð Vesturbæjar, að stíga sitt fyrsta græna skref í átakinu Grænu skrefin. Grænu skrefin er áætlun um að gera borgina græna og vistvæna og auka þannig lífsgæði borgarbúa. Fyrsta skrefið felur í sér að efla vistvænan rekstur á vinnustaðnum t.d  að vera meðvitaður um nýtingu á eldhúsbúnaði, endurvinna sorp, minnka kaup á plastumbúðum eins og vatni í plastflöskum, vera meðvitaður um vistvænan ferðamáta og fleira.

Hér má lesa um Grænu skrefin.