KR skokk

KR-skokk, hlaupahópur Vesturbæinga, var stofnaður í maí 2012. Markmið hópsins er að ná til allra sem hafa áhuga á að hittast, hafa gaman og hlaupa saman. Allir velkomnir!

Hópurinn skiptist í byrjendur og lengra komna og eru þjálfarar með hvorum hópi. Byrjendanámskeið hefst þriðjudaginn 11. september kl. 17.30 við KR-heimilið, Frostaskjóli. Um kvöldið er kynningarfundur fyrir alla KR-skokkara í KR-heimilinu, kl. 20.00.

Æfingartímar

  • Þriðjudaga kl. 17.30 við KR-heimilið
  • Fimmtudaga kl. 17.30 við KR-heimilið
  • Laugardaga kl. 9.30 við Vesturbæjarlaug

 Æfingagjöld

Árgjald fyrir æfingar eru 15.000 kr. Skráning og greiðsla á: https://kr.felog.is.

 Sjáumst á æfingu – og kynningar­fundinum 11. september.

 Ásdís Káradóttir

Birgir Sævarsson

Margrét Elíasdóttir

Rúnar Reynisson

 

 

Reynslusaga úr Reykjavíkurmaraþoni

Hljóp í fyrsta skipti á ævinni 10 km í keppni og ætlaði mér undir klukkutíma. Kom í mark á flögutíma 56:13 og er í skýjunum með það! Klárt að KR-skokk hjálpaði til og ég hlakka til framhaldsins!

Valdís KR-skokkari