Reykjavíkurborg vinnur markvisst gegn kynbundnum launamun
Í áraraðir hefur verið fylgst með þróun kynbundins launamunar hjá Reykjavíkurborg með reglulegum könnunum. Þannig hefur verið hægt að bregðast við með skipulegum hætti og hafa aðgerðir borgarinnar, s.s. með því að innleiða starfsmat, skilað sýnilegum árangri til að jafna launamun kynja. En betur má ef duga skal.
Starfshópur um aðgerðir gegn kynbundnum launamun, sem er nú að störfum, mun á haustmánuðum skila áætlun um hvernig megi tryggja launajafnrétti karla og kvenna hjá borginni. Slíkri áætlun er ætlað að útrýma kynbundnum launamun að fullu.
Gildandi kjarasamningar starfsmanna Reykjavíkurborgar byggja á kjarasamningum sem gerðir voru við viðsemjendur á síðasta ári.