Rimaskóli Norðurlandameistari grunnskóla í skák í fjórða sinn

Skáksveit Rimaskóla vann með miklum yfirburðum Norðurlandameistaramót grunnskóla 2012. Rimaskólakrakkar unnu allar sínar viðureignir örugglega en á mótinu kepptu bestu skáksveitir grunnskóla hvaðanæva af Norðurlöndum. Rimaskólakrakkarnir fengu 18,5 vinninga af 20 mögulegum en í öðru sæti urðu norsku meistararnir með 13,5 vinninga. Í lokaumferðinni lagði skáksveit Rimaskóla dönsku meistarana frá Árósum 4 - 0. Glæsilegur endir á einstakri frammistöðu á mótinu.



Í skáksveit Rimaskóla eru Dagur Ragnarsson, Oliver Aron Jóhannesson, Jón Trausti Harðarson, Hrund Hauksdóttir og Nansý Davíðsdóttir. Liðstjóri Rimaskóla er Davíð Kjartansson og fararstjóri Helgi Árnason skólastjóri.  

Rimaskóli hefur unnið Norðurlandamót barna-eða grunnskólasveita í skák fjórum sinnum á síðustu fimm árum og hefur enginn grunnskóli á Norðurlöndum staðið sig jafn vel.