Biophilia-smiðjurnar fá verðlaun sem besta vísindamiðlunarverkefnið
Háskóli Íslands hlaut um helgina evrópsk verðlaun fyrir besta vísindamiðlunarverkefni ársins 2011. Um er að ræða svokallaðar Biophilia-tónvísindasmiðjur sem er samstarfsverkefni Bjarkar Guðmundsdóttur tónlistarkonu, Háskóla Íslands og Reykjavíkurborgar.
Samtök samskiptasérfræðinga í evrópskum háskólum (EUPRIO) veita verðlaunin og tók Jón Örn Guðbjartsson, sviðsstjóri markaðs- og samskiptasviðs Háskóla Íslands, við þeim fyrir hönd háskólans á ársfundi samtakanna í Gautaborg. Aðild að EUPRIO eiga flestir virtustu háskólar Evrópu.
Alls tóku um 20 verkefni frá evrópskum háskólum þátt í keppninni um besta vísindamiðlunarverkefni ársins 2011 og á endanum stóð valið á milli tveggja verkefna frá Háskóla Íslands, Biophiliu-tónvísindasmiðjanna og vísindaþáttanna Fjársjóður framtíðar sem sýndir voru á RÚV á aldarafmælisári HÍ. Dómnefnd ákvað að verðlauna Biophilia-verkefnið, m.a. vegna alþjóðlegrar skírskotunar þess.
Tónvísindasmiðjurnar urðu til í tengslum við Biophilia-borgardvalir Bjarkar, þar sem hún heldur óvenjulega tónleika í borginni í nokkrar vikur í senn. Þær eru unnar í samstarfi tónlistarkonunnar, fræðimanna við HÍ og kennara hjá Reykjavíkurborg og eru fyrir grunnskólanema á aldrinum 10 - 12 ára. Þar fá börn tækifæri til að læra á nýstárlegan hátt um tónlist og vísindi og skapa sína eigin tónlist.
Sérfræðingar úr Háskóla Íslands og frá Reykjavíkurborg, svo og teymi Bjarkar þróuðu kennsluefnið í smiðjunum en þar fræðast nemendur bæði um tónfræði og ýmis undur náttúrunnar, svo sem andefni, kristalla, eldingar, jarðrek, vírusa og erfðaefni. Lögin á Biophilia vísa til þessara fyrirbrigða. Í undraheimi Biophilia-verkefnisins læra nemendur einnig á sérstök smáforrit (öpp) í iPad-spjaldtölvum og skapa sínar eigin útsetningar og tónsmíðar og hjálpa jafnframt til við að móta námskrá framtíðarinnar.
Sigurför um heiminn
Biophilia-verkefnið fór af stað í fyrrahaust þegar rúmlega 60 nemendur úr grunnskólum Reykjavíkur sóttu tónvísindasmiðjur í Hörpu og nutu leiðsagnar grunnskólakennara á vegum Reykjavíkurborgar og kennara og vísindamanna frá Háskóla Íslands. Síðan þá hafa smiðjurnar farið sigurför um heiminn og m.a. verið haldnar í Osló, Buenos Aires og New York.
Verkefnið heldur áfram hér á landi næstu þrjú árin því boðið verður upp á Biophilia-verkfærakistu fyrir nemendur og kennara 5. - 7.bekkjar sem ferðast mun um grunnskóla Reykjavíkur. Þannig er ætlunin að samþætta tónlistarnám, vísindi, tölvutækni, sköpun og jafnvel fleiri námsgreinar.