Sambýlið í Jöklaseli er að hefja notkun Ipada í starfinu
Sambýlið í Jöklaseli er að hefja notkun Ipada í starfinu bæði til að auka möguleika íbúa til tjáningar og einnig sem afþreyingu.
Kristrún Sigurjónsdóttir forstöðuþroskaþjálfi segir sambýlið hafa keypt tvo Ipada sem notaðir eru til skiptis af heimilisfólkinu og allir séu ótrúlega ánægðir með tækin. Fjórir af sex íbúum heimilisins eru byrjaðir á námskeiðum hjá Fjölmennt í notkun Ipad. Starfsmenn eru einnig að kynna sér notkun Ipad við tjáskipti í starfi með fólki með einhverfu.
Í framtíðinni vonast Kristrún eftir að allir íbúar eigi þess kost að hafa sitt eigið tæki og geti notað það hvenær sem þeir vilji. Það er jú leiðin til að þeim takist að tileinka sér tækið og tæknina við tjáningu.