Námskeið - hópar - viðburðir
Vetrarstarfið er nú farið á fullt í félagsmiðstöðinni Vesturreitum en ýmislegt er í boði fyrir fólk á öllum aldri. Möguleikarnir eru óþrjótandi! Námskeið í myndlist, postulínmálun, útskurði og jóga eru byrjuð og hópar í kringum bókmenntir, hannyrðir, göngur og tálgun. Á næstunni hefjast svo námskeið í þæfingu og tölvufærni.
Á skrifstofu félagsmiðstöðvarinnar fer nú fram skráningí fleiri hópa, en þeir eru: bocciahópur, leikhúshópur, sönguhópur og félagsvist.
Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við skrifstofu félagsmiðstöðvarinnar í síma 411 2702 og 411 2711.
Við hvetjum alla til að taka þátt í félagsstarfi sem bætir, hressir og kætir.
Ef þig langar að skipuleggja hóp í kringum sérstakt áhugamál, ekki hika við að hafa samband!
Hér er dagskrá haustsins á pdf-formi.