Auglýst eftir umsóknum um styrki til þróunarverkefna
Skóla- og frístundaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr þróunarsjóði ráðsins. Markmiðið er að styðja við ýmis verkefni sem stuðla að auknu samstarfi, rannsóknum eða nýbreytni á starfsstöðum skóla- og frístundasviðs. Við úthlutun verður einkum horft til verkefna sem leggja áherslu á lýðræði og mannréttindi svo og upplýsinga- og tæknimennt í leikskólum, grunnskólum og frístundastarfi.
Þrátt fyrir ofangreindar áherslur er heimilt að sækja um styrki vegna annarra verkefna sem falla að starfsáætlun skóla- og frístundasviðs og er fólk sérstaklega hvatt til að horfa til nýbreytniverkefna sem lúta að nýrri menntastefnu og innleiðingu aðalnámskráa. Þróunarstyrkjum skóla- og frístundaráðs er úthlutað árlega í samræmi við áherslur í starfsáætlun sviðsins.
Frekari upplýsingar um reglur og umsóknir veita Auður Árný Stefánsdóttir skrifstofustjóri grunnskólaskrifstofu, Hildur Skarphéðinsdóttir skrifstofustjóri leikskólaskrifstofu og Soffía Pálsdóttir, skrifstofustjóri frístundaskrifstofu.
Umsóknir skulu hafa borist skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12, í síðasta lagi 10. október 2012 á þar til gerðum eyðublöðum.
Sjá umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar.
Sjá auglýsingu um styrki úr þróunarsjóði 2013.