Note: This news was published over two years ago.
Flaggað í tilefni af hópastarfi elstu barnanna Sunnuási
Fáni var dreginn að húni þegar hópastarf elstu barna í Sunnuási hófst formlega í dag 12.september á eins árs afmælisdegi skóla og frístundasviðs.
Alls eru 36 börn úr báðum starfsstöðvum leikskólans sem munu njóta saman þessa síðasta árs á leikskólastiginu, m.a. í útikennslu, lífsleikni og tónlist.
Að lokinni athöfn í sal snæddu þau saman hátíðarmorgunverð. Sunnuás er sameinaður leikskóli gamla Hlíðarenda og Ásborgar.