Borgarstjóri hitti unga blaðamenn úr Fossvogsskóla

Jón Gnarr borgarstjóri tók í morgun á móti þremur ungum blaðamönnum  úr Fossvogsskóla. Krakkarnir eru í 5. bekk og tóku þau hálftíma langt viðtal við borgarstjóra um allt á mili himins og jarðar. Viðtalið fór fram á skrifstofu borgarstjóra.

Þau Anna Rakel Arnþórsdóttir, Dagný Guðmundsdóttir og Einar Páll spurðu borgarstjóra spjörunum úr um alls konar hluti. Meðal annars vildu þau vita hvort borgarstjóri hefði einhvern tímann verið í Fossvogsskóla. Jón svaraði því til að hann hefði verið nemandi í Fossvogsskóla frá 6 - 12 ára aldurs og var Svanhildur Kaaber umsjónarkennarinn hans.

Viðtalið mun birtast í Fréttablaði Fossvogsskóla sem krakkarnir hafa veg og vanda af.