Hugmyndasamkeppni um Öskjuhlíðina
Í sumar stóð yfir opin hugmyndasamkeppni meðal almennings um nýtingu Öskjuhlíðarsvæðins sem gekk undir nafninu „Skemmtilegri Öskjuhlíð“. Markmið samkeppninnar var að leita eftir hugmyndum um hvernig efla mætti mannlíf og styrkja útivist á svæðinu ásamt hugmyndum um almenna nýtingu Öskjuhlíðarinnar. Vonast er til þess að niðurstöður samkeppninnar verði mikilvægt innlegg fyrir gerð rammaskipulags svæðisins en stefnt er á að halda fagsamkeppni um heildarskipulag Öskjuhlíðarinnar í vetur.
Alls bárust 58 tillögur í opnu hugmyndasamkeppnina, og eru margar þeirra ítarlega unnar með fjölþættum hugmyndum um hvernig bæta megi Öskjuhlíðina. Dómnefndin hefur þegar hafið störf en vonast er til þess að hún ljúki störfum í byrjun október. Stefnt er á að halda sýningu á þeim tillögum sem hljóta viðurkenningu eftir að niðurstöður dómnefndar verða gerðar kunnar.