Fastur á netinu?

Yfirskrift fyrsta morgunverðarfundar Náum áttum á þessu hausti er Fastur á netinu? þar sem fjallað verður um tölvufíkn, áhrif mikillar tölvunotkunar á ungmenni, forvarnir og úrræði. 

Á fundinn mæta með erindi þau Guðlaug Júlíusdóttir, félagsráðgjafi á BUGL, sem fjallar um „valdmiklar tölvur - hver ræður heima?“ og Hafþór Birgisson, tómstunda- og félagsmálafræðingur með erindið „jákvæð netnotkun, ekki verður bókvit í askana látið“.  Einnig er með framsögu ungur maður sem segir sögu sína, hvernig hann "lokaðist á netinu" sem unglingur, leitaði sér hjálpar og losnaði úr viðjum fíkninnar.

Morgunverðarfundurinn er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir en með morgunverði kostar þátttakan 1.800 kr. (sjá auglýsingu).  Fundarstjóri verður Steinunn Bergmann hjá Barnaverndarstofu. Náum áttum er samstarfsverkefni samtaka og stofnana í forvörnum en nýlega var vefsíða verkefnisins uppfærð.

Skráning á fundinn.