Íþróttadagur í Ártúnsskóla

Hefðbundið skólastarf var brotið upp í Ártúnsskóla miðvikudaginn 12. september og dagurinn helgaður íþróttum, leikjum og ýmsum skemmtilegum þrautum. Nemendur nutu dagsins þar sem aldurshópunum var blandað saman og allir fóru í sameiningu gegnum ýmsar stöðvar sem settar höfðu verið upp. 

Foreldrafélagið í Ártúnsskóla hefur heldur ekki látið sitt eftir liggja í hreyfingu. Það stóð á dögunum fyrir göngu á Helgafell í Mosfellsbæ. Ánægjan skein úr andlitum allra þegar toppnum var náð.