Á réttri leið - svona ferðast ég

Í tilefni af evrópskri samgönguviku dagana 16. - 23. september efnir Reykjavíkurborg til ljósmyndasamkeppni um visthæfar samgöngur undir fyrirsögninni; Á réttri leið – svona ferðast ég. Samkeppnin hefst í dag og lýkur á miðnætti þann 30. september.

Ljósmyndasamkeppnin fer fram á fésbókarsíðu Reykjavíkurborgar (https://www.facebook.com/Reykjavikurborg/app_293352567413386) og þangað má senda inn myndir af hjólandi, gangandi og hlaupandi fólki, fólki í strætó og fólki á rafbílum svo eitthvað sé nefnt.

Í boði eru vegleg verðlaun; reiðhjól að verðmæti 76.000 kr. frá Erninum, strætókort og sundkort í sundlaugar Reykjavíkur.

Dómnefnd velur 3 bestu myndirnar en myndin sem flestum „Líkar við“ fær sérstök verðlaun.