Réri á kanó um votlendið í Vatnsmýri
Jón Gnarr borgarstjóri réri á kanó um votlendið í Vatnsmýrinni í gær til opnunar á sýningu um fuglana, gróðurinn, votlendið og mannlífið í Vatnsmýrinni. Sýningin tengist Náttúruskóla Norræna hússins og er hún staðsett í kjallara hússins.
Í vor var stigið mikilvægt skref þegar Reykjavíkurborg, Norræna húsið og Háskóli Íslands tóku höndum saman og hófust handa við að endurheimta votlendið í Vatnsmýrinni. Grafinn var skurður sem myndar nokkuð stórt eyland sem er nú þegar orðinn griðland fugla og lífríkis í Vatnsmýrinni.
Við opnunina sagði borgarstjóri m.a. að hann hefði lofað því að opna Disneyland í Vatnsmýri. Hann liti svo á að það loforð væri nú efnt því hann gæti ekki betur séð en að Andrés Önd og öll fjölskylda hans væru komin í Vatnsmýrina og svo hefði hann séð Mikka Mús þegar hann réri eftir skurðinum.
Á sýningunni í Norræna húsinu eru dregin upp brot úr marglaga lífi og sögu Vatnsmýrarinnar. Hún er hugsuð til að efla vitund nemenda og alls almennings um náttúruna í hjarta borgarinnar.
Sýningin verður opin fyrir grunnskóla borgarinnar alla daga vikunnar milli kl. 9 og 12 fyrir hádegi. Fjórða, fimmta og sjötta bekk allra grunnskóla í Reykjavík var boðið á sýninguna og hafa viðtökur farið fram úr björtustu vonum því orðið er fullt alla daga. Sýningin er opin almenningi alla daga nema mánudaga. Fjölskyldur geta komið og skoðað sýninguna og fer starfsmaður frá Norræna húsinu með þeim í gegnum sýninguna og hjálpar við að leysa ýmis verkefni sem tengd eru svæðinu.
Sýningin stendur frá 5. september til 4. nóvember.
Náttúruskóli Norræna hússins:
Ljósmyndari: Mira Kristiina Mykkaenen