Hjólað í samgönguviku

Evrópska samgönguvikan var sett formlega  í gær að loknum vel heppnuðum hjólreiðaferðum sem boðið var upp á í morgun með leiðsögn undir yfirskriftinni ,,hjólaævintýri fjölskyldunnar“. Hjólað var frá þremur upphafsstöðum á höfuðborgarsvæðinu milli vatnavinja þar sem áhugasamir fræðimenn sögðu frá náttúrufyrirbærum á svæðinu. Hjólaævintýrið markaði með tákrænum hætti upphaf tíundu samgönguvikunnar, en á dagskrá eru margir viðburðir tengdir hjólreiðum.

Meðal viðburða í samgönguvikunni er Hjólað í skólann á þriðjudag og einnig verður ,,Pump track“ hjólabraut opnuð með viðhöfn í Öskjuhlíð á miðvikudag. Í lok vikunnar er svo boðið til málþings um hjólreiðar og vistvænar samgöngur.  Stæðaæði verður haldið í annað sinn á Íslandi, en það er árlegur alþjóðlegur viðburður (Park(ing)Day) þar sem almenningur, listafólk, hönnuðir og hagsmunasamtök prófa fjölbreytta notkunarmöguleika gjaldskyldra bílastæða einn dag á ári. Samgönguvikunni lýkur svo laugardaginn 22. september með ,,bíllausa deginum“. Dagskrá samgönguviku í Reykjavík er aðgengileg á vef borgarinnar www.reykjavik.is/samgonguvika.

Ljósmyndasamkeppnin ,,Á réttri leið – svona ferðast ég” er opin á  Facebook síðu Reykjavíkurborgar og eru allir hvattir til að taka myndir af sínum samgöngumáta. 



Evrópska Samgönguvikan er haldin er árlega dagana 16. - 22. september.   Reykjavík tekur þátt ásamt öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu og fjölmörgum samstarfsaðilum. Karl Sigurðsson, formaður umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkur, rifjaði upp í setningaræðu sinni tilgang evrópsku samgönguvikunnar og stiklaði á stóru um dagskrá vikunnar.

 Markmið vikunnar eru:

- að stuðla að aukinni vitund borgarbúa um nauðsyn þess að minnka mengun af völdum umferðar

- að efla samstarf við félagasamtök vegna öryggis í umferðinni og hvetja þau til aðhalds gagnvart ríki og borg

- að leggja áherslu á almenningssamgöngur í borginni

- styrkja samgöngustígakerfi borgarinnar með áherslu á hjólreiðar

- að kynna stefnu borgarinnar í umhverfis- og samgöngumálum og verkefni sem miða að sjálfbærri þróun

Skoða dagskrá samgönguviku í Reykjavík >>> www.reykjavik.is/samgonguvika.

.