Heldur liðagigt niðri með hjólreiðum
Hrönn Harðardóttir losaði sig við 35 kíló þegar hún byrjaði að hjóla í vinnuna. Hún segir að hjólreiðarnar hafi tvímælalaust breytt heilsu hennar til hins betra. Í fyrravor hvatti Hrönn bróður sinn Geir til að taka upp svipaðan lífsstíl sem hann og gerði. Nú fara þau nánast allra sinna ferða hjólandi.
„Ég fann hjól út í skafli fyrir nokkrum árum. Ég ætlaði að fara með það í Sorpu en prófaði að setjast á fákinn og það var hægt að hjóla á honum. Síðan hef ég eiginlega ekki stoppað,“ segir Hrönn sem oft er kölluð Hjóla-Hrönn.
Hrönn vinnur hjá tölvudeild Landsbankans í miðborginni og hjólar alltaf í vinnuna. „Þetta eru fimm kílómetrar og ég er korter að hjóla. Ef ég færi á bíl væri ég lengur á leiðinni. Þá þyrfti ég að eyða tíma í að finna stæði í miðborginni,“ segir hún. „Ég geri líka innkaupin á hjólinu. Eiginlega nota ég bílinn einungis til að skutla krökkunum.“ Hún hjólar því að minnsta kosti 10 kílómetra á dag á virkum dögum en oftast miklu meira.
Geir hóf sína hjólamennsku eftir langt hlé í vor eftir talsverða hvatningu frá systur sinni. „Ég var alltaf að pína hann til að koma út að hjóla með mér og hann lét loksins tilleiðast og keypti sér hjól.“
Geir segist hafa byrjað á því að taka matarræðið í gegn og hafi strax losnað við 10 kíló vegna þess. Hann býr í Vesturbænum en vinnur sem tölvunarfræðingur hjá upplýsingatæknimiðstöð Reykjavíkurborgar. „Ég byrjaði á því að hjóla í vinnuna en var svo óheppinn að detta og brjóta á mér viðbeinið í vor. Þannig að hjólasumarið mikla fór eiginlega út um þúfur hjá mér. Ég er samt byrjaður aftur og læt þetta ekki stoppa mig.“
Systkinin eru virk í Fjallahjólaklúbbnum en Hrönn er í stjórn þess merka klúbbs. Klúbburinn fer í skipulagðar ferðir nokkrum sinnum á ári og var meðal annars hjólað að Úlfljótsvatni um síðustu helgi og fóru systkinin bæði í þá ferð.
Hrönn segir að bæta megi aðstöðu til hjólreiða umtalsvert á höfuðborgarsvæðinu þótt mikið hafi verið gert á undanförnum árum. „Nú eru svo margir farnir að hjóla og þá eykst umferðin um stígana. Hraðinn á hjólunum er umtalsverður sem skapar hættu fyrir gangandi vegfarendur. Þeir eru farnir að kvarta. Einnig má bæta vetrarþjónustuna talsvert. Sandi er dreift á stígana í hálku og hann er slæmur fyrir hjólin, festist í keðjunni og tannhjólunum. Í fyrravetur dreifðu menn sandi með ögnum sem sprengdu dekk hjá fjölmörgu hjólafólki. Sandurinn getur líka verið hættulegur og virkar eins og hálka við ákveðnar aðstæður. Það verður því að sópa hann af stígunum sem fyrst þegar snjóa leysir.“
Þau segja að mikil vakning sé á meðal almennings varðandi hjólreiðar. „Fyrst voru bara tvö í vinnunni hjá mér sem hjóluðu til vinnu. Nú hafa miklu fleiri bæst í hópinn. Ég held að hjólavakningin sé rétt að byrja,“ segir Hrönn.
Bæði hafa eytt nokkrum fjármunum í hjólreiðarnar. „Ég á þrjú hjól í dag, fjallahjól fyrir erfiðari ferðir, götuhjól og svokallaðan racer,“ segir Hrönn sem segir hjólreiðarnar geta orðið að mjög skemmtilegu áhugamáli. Byrjendur geti vel komist af með lítið en kostnaðurinn vindi stundum upp á sig eftir því sem hjólreiðadellan magnist.
Þau segja að búnaðurinn verði fyrst og fremst að vera öruggur. Það á við um hjólið sjálft, öryggisbúnað eins og bremsur, ljós og glitaugu en ekki síður um hlífðarfatnaðinn sem verði að halda veðri og vindum, en jafnframt anda vel. Þau segja einnig mikivægt að hafa góða aðstöðu á vinnustað því fólk þarf gjarnan að fara í sturtu eftir hjólatúrinn og hafa föt til skiptanna í vinnunni. Bæði segja hugsað fyrir því á vinnustöðum sínum.
Þótt byrjunarkostnaður sé einhver er aðalatriðið að fólk er fljótt að finna pyngjuna þyngjast vegna minni eldsneytiskostnaðar og mittismálið minnka að sama skapi eftir því sem meira er hjólað.
„Ég væri áreiðanlega lögst í rúmið vegna liðagigtarinnar ef ég hefði ekki byrjað að hjóla. Þetta er svo fín hreyfing fyrir mig og heldur mér algjörlega í formi. Í rauninni er allt sem mælir með því að hjóla. Fólk fær góða líkamsrækt út úr þessu, sparar mikla peninga í bensínkostnað og minnkar mengun í borginni umtalsvert,“ segir Hrönn að lokum.
Viðtalið er birt í tilefni af evrópskri samgönguviku dagana 16. – 23. september. Á samgönguviku er fólk hvatt til þess að tileinka sér visthæfa samgöngumáta og skilja einkabílinn eftir heima.
Ljósmyndasamkeppnin ,,Á réttri leið – svona ferðast ég” er opin á fasbókarsíðu Reykjavíkurborgar og eru allir hvattir til að taka myndir af sínum samgöngumáta.